Hér á Hótel Á bjóðum við uppá gistingu með uppábúnum rúmum og morgunverði í notalegu sveitaumhverfi með mögnuðu útsýni yfir á og jökla. Öll herbergin hafa sér baðherbergi. 20 tveggjamanna herbergi, 2 þriggjamanna herbergi og 3 fjölskylduherbergi. Til að sjá verð er hægt smella á bókunarhnappinn hér á síðunni.

Handklæði og morgunverður eru innifalin í verði.

Í herbergjum er frítt þráðlaust internet, handklæði, ketill, te og kaffi.

Í móttökunni er hægt að kaupa drykki. Athugið að kvöldverður er ekki í boði á hótelinu.

Innritun: 16:00 – 22:00
Útritun: 8:00 – 11:00

Morgunverður er frá 7:30 – 9:30 (15.05 – 15.09) og 8:00-9:30 (16.09 – 14.05)

ATH Hótel Á er lokað frá 01.11 -01.03.